Nóvember 2012

Þá er komið að því að nýtt tímarit um allt á hjólum og líka beltum já og með skrúfu hefur litið dagsins ljós. Mörg tímarit hafa verið gefin út undan farin ár með misjöfnum árangri og vona ég svo sannarlega að þetta rit verði langlíft.


Okkur langar að fjalla um bíla, mótorhjól, báta, vélsleða, fjórhjól, jeppa osf. Við vonum líka að fólk komi og heimsæki vefinn okkar sem er að fara í loftið og verður í þróun í einhvern tíma, en þar er hugmyndin að vera með myndbönd og fleira efni sem ekki kemst í blaðið. Eins og flestir hafa nú tekið eftir er þetta í fríblaðsformi og við vonumst til að geta haldið því áfram og lifað á auglýsingunum einum saman.


Þá ætlum við að reyna að vera bæði með bíla og mótorhjóla/vélsleða/fjórhjólaprófun í hverju blaði, en það fer þó eftir framboði á nýjum tækjum Kannski er það að spenna bogann svolítið hátt að ætla að gefa svona blað út mánaðarlega, en ég held að markaðurinn sé fyrir hendi og treysti á það. Þá langaði mig líka að biðja lesendur endilega að senda okkur póst eða hafa samband á “facebook” síðu okkar og koma með hugmyndir að efni í blaðið, og við munum skoða það allt saman. Við ætlum okkur að gera 4x4 og fjallaferðum góð skil og þá sérstaklega í vetur og síðan þegar fer að vora þá tekur mótorsportið við og þá höfum við nýju tækin allan ársins hring. Við ætlum í komandi blöðum að reyna að fylgjast með nýjustu fréttum úr þessum geira bæði hvað varðar íhluti og ný tæki. Ég minni síðan á vefinn okkar www.motorogsport.is og síðan er hægt að hafa samband á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.


Bestu kveðjur.
Hálfdán Sigurjónsson.